Ég er alveg örugglega á topp 10 yfir lötustu bloggara sem til eru og ætla að stórefast um að ég fari að lagast eitthvað!
Margt búið að gerast síðan síðast.....misskemmtilegt en gerðist engu að síður.
Fórum í ofsalega vel heppnaða ferð til Búlgaríu. Soldið heitt en maður er nú hörkutól þannig að það skemmdi ekkert ferðina. Ég allavegna mæli alveg með Golden Sands, þar sem við vorum, til að liggja í sólbaði með Pina Colada eða öl.
Eftir Búlgaríu skelltum við okkur á Reyðarfjörð og vorum þar í viku. Það var voða ljúft og brjálað að gera í heimsóknum. Man þegar ég bjó fyrir austan að þá var alltaf brjálað að gera þegar maður skrapp til Reykjavíkur til að komast yfir allt sem maður ætlaði að gera og slakaði svo á þegar maður kom austur aftur, en nú er þetta alveg öfugt. Þvílík afslöppun að koma suður aftur......home sweet home! En alltaf gott að koma austur samt 
Toyotan dáin....blessuð sé minning hennar. Ekkert smá erfitt að skilja hana eftir á partasölu
En svona er þetta bara.....búin að gera sitt gagn þessi rúmu níu ár sem ég átti hana. Þannig að núna er það bara strætó á morgnanna og satt best að segja finnst mér það bara assskoti fínt. Ekkert að spá í þessa umferð á morgnanna.....hentar mér ágætlega!
Lenti í mínum fyrsta árekstri í ágúst......á bílnum hans Tryggva
Keyrt aftan á mig og eyðilagði stuðarann og pústið. En það er búið að laga það, þannig að Hondan er eins og ný núna!!!
Svo náði ég að eyðileggja sófasettið okkar svo við þurftum að kaupa nýtt. Og þá langaði mig auðvitað í nýjan sjónvarpsskáp líka, þannig að því var reddað daginn eftir!! Þannig að íbúðin okkar er orðin ofsalega flott.....verðið bara að kíkja í heimsókn ef þið viljið sjá 
Þannig að það hefur verið nóg að gera síðustu mánuði hjá mér að skemma ýmislegt í kringum mig..... og þetta er sko fyrir utan ónýta klósettkassann og dvd spilarann!! Og til að kóróna þetta allt saman át hraðbankinn debetkortið mitt um helgina og það er víst bara á rúntinum um borgina og erfitt að nálgast það. Kæmi mér ekki á óvart að það endaði í útibúinu mínu....sem er á Reyðarfirði!!
En ætla að láta þetta duga í bili.......
Kv. Helena sem efast um að hún fari að vera heppnari!!